Roma Chair
Verð frá
568.540 kr
Lýsing
Roma Chair
Roma Chair
Örmjóir fæturnir gera það að verkum að Roma virðist næstum svífa yfir gólfinu. Burðarþol þeirra ræður þó vel við að halda uppi þessum stóru, þægilegu húsgögnum. Roma er hugarfóstur sænska hönnuðarins Jonas Wagell og vann til hinna eftirsóttu verðlauna Archiproducts Design Awards árið 2017. Hálfhringurinn leikur stórt hlutverk í þessari fjölbreyttu húsgagnalínu, sem inniheldur sófa, hægindastóla og legubekki, auk þess sem hann skapar sterka tengingu við hönnunarstefnur og strauma sjötta áratugar síðustu aldar. Roma deilir bogadregnum línum sínum með hinu sögufræga hringleikahúsi í Rómaborg, sem útskýrir nafngiftina.