Hönnun: Karen Chekerdjian, 2021 – Tacchini
Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Tvær skögultennur teygja sig samhljóma út á við. Fjórir fætur festa stólinn við gólfið og miðla krafti og styrk. Þægilegur og tignarlegur fíll sem er tilbúinn að taka á móti hverjum þeim sem treystir honum. Skýrar línur og frumstæð form sameinast vandaðri húsgagnasmíði í þessum táknræna stól líbanska hönnuðarins Karen Chekerdjian. Undirstaða Elephant er úr renndum, gegnheilum við, unnin og fáguð svo hún er mjúk viðkomu. Grindin er úr handunnu leðri, með einstaklega þægilegum púða fylltum gæsadúni. Stóllinn fæst í ljósbrúnu eða dökkbrúnu leðri og við hann má fá skemil. Hann er hannaður með endingu og sjálfbærni í huga og hentar í hvers kyns umhverfi.
Stærð
Vörunúmer OELE72
B72 x D90,2 x H66 x SH33,2 cm
Vörunúmer OELE62
B62 x D50 x H36,5 cm
B = breidd, D = dýpt, H = hæð, SH = setuhæð

