Eikund
Eikund er norskt húsgagnamerki sem var stofnað vorið 2016 til að endurvekja norska hönnun frá sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. Í vörulínunni eru sígild verk eftir hönnuði á borð við Fredrik A. Kayser, Torbjørn Afdal, Sigurd Resell, Sven Ivar Dysthe og Torbjørn Bekken, framleidd til að endast. Hjá VEST finnur þú hægindastóla, borðstofustóla og borð frá Eikund, sem framleidd eru eftir pöntun.













