Halldór Ragnarsson
Í list sinni veltir Halldór Ragnarsson fyrir sér málheimspeki og hinni eilífu hringrás tilfinninga í tengslum við tungumál og merkingu. Í verkum sínum rannsakar Halldór hvernig orð geta glatað merkingu sinni og gildi fyrir tilstilli endurtekningar. Með því að nota setningar og frasa úr nánasta umhverfi sínu beygir hann reglur tungumálsins og leikur sér með orð og óvenjuleg orðatiltæki. Í gegnum þessi tjáningarform reynir Halldór að bera sjálfan sig og einkalíf sitt saman við málheimspeki og merkingu tungumálsins almennt.


