Skilmálar VEST
Pantanir
Vest tekur við pöntun þegar greiðsla hefur borist. Um leið og greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti. Réttur er áskilinn til að staðfesta pantanir símleiðis í undantekningartilfellum.
Afhendingartími er að jafnaði 2-4 virkir dagar eftir að pöntun berst, að því gefnu að varan sé til á lager, og greiðsla hefur átt sér stað en gæti verið lengri í kringum jól og stóra verslunardaga. Varan er send beint heim til kaupanda á höfuðborgarsvæðinu með Póstinum, viðkomandi fær tilkynningu áður en sendingin kemur. Einnig geta viðskiptavinir óskað eftir því að sækja í verslun Vest, Ármúla 17. Á álagstímum getur þó komið fyrir að afhendingartími sé lengri.
Sérpantanir
Fyrirspurnir varðandi sérpantanir skal senda á vest@vest.is eða koma í versluna okkar á Dalvegi 30. Þegar um sérpantanir er að ræða er afhendingartími frá 8-12 vikur. Farið er fram á 70% innborgun þegar varan er pöntuð og afgangurinn greiddur þegar varan er afhent, sérpöntunum er ekki hægt að skila eða skipta. Athuga þarf að litir á áklæðum geta breyst eins og eðilegt er og gefur það ekki rétt á endurgreiðslu eða skiptum.
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Heimsending upp að dyrum kostar frá 1.990 kr. Sendingarkostnaður fellur niður ef verslað er fyrir 20.000 kr. eða meira.*
*ATHUGIÐ að þetta á ekki við um húsgögn eða stærri vörur,sem eru í stórum pakkningum t.d. stærra enn 30cm x 30cm og stærra eða mjög brothættar vörur. Kaupandi greiðir semsagt flutningskostnað af stærri vörum og sérpöntunum.
Verð
24% virðisaukaskattur er innifalinn í verði vörunnar. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndbrengl eða prentvillur og áskilur Vest sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp. Ef varan er ekki til á lager látum við þig vita og endurgreiðum hafi greiðsla farið fram og viðskiptavinir sjá sér ekki fært að bíða eftir næstu sendingu.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Vörum sem eru pantaðar af netinu er hægt að skila innan 14 daga og fá endurgreiðslu. Skilyrði er að varan sé óskemmd, óopnuð í upprunalegum umbúðum og kvittun fylgi. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur. Viðskiptavinir skulu bera beinan kostnað af því að skila vöru. Viðskiptavinir skulu tilkynna um ákvörðun sína um að falla frá samningi með ótvíræðri yfirlýsingu þar um innan 14 daga frestsins, en það er m.a. hægt að gera með því að senda tölvuskeyti á netfangið vest@vest.is eða senda VEST staðlað uppsagnareyðublað sem er að finna á vef Neytendastofu www.neytendastofa.is (þar sem jafnframt er að finna frekari upplýsingar um skilarétt), en í kjölfarið skal VEST láta viðskiptavini í té kvittun fyrir móttöku uppsagnarinnar. Vakin er athygli á því að sönnunarbyrði um að réttur til að falla frá samningi sé nýttur í samræmi við ákvæði 19. gr. laga um neytendasamninga nr. 16/2016, hvílir á viðskiptavininum, sbr. g-liður 1. mgr. 5. gr. laganna.
Greiðslur
Þú getur greitt fyrir vöruna í vefversluninni með kreditkorti í gegnum öruggar greiðslugáttir.
Einnig getur þú greitt með netgíró. Netgíró bíður upp á kortalaus viðskipti á netinu. Þú þarft að vera með aðgang hjá Netgíró til þess að nýta þér þjónustuna, fyrir þá sem hafa hann ekki er hægt að skrá sig hérna. Þegar þú greiðir með netgíró þarftu aðeins að skrá inn kennitölu og lykilorð og þá er pöntunin frágengin. Reikningur stofnast á viðskiptavin í heimabanka sem greiða þarf innan 14 daga, vaxtalaust. Einnig er hægt að velja að greiða með raðgreiðslum og það er mögulegt á að dreifa því á 2-12 mánuði.
Einnig er í boði að millifæra og þá er mikilvægt að senda staðfestingu á vest@vest.is
Öryggi og persónuvernd á vefnum
Þegar þú notar vef vest.is þá verða til upplýsingar um heimsókn þína. Vest import ehf miðlar þeim ekki til annara.
Vest virðir friðhelgi perónuupplýsinga viðskipta vina sinna. Með því að heimsækja vefinn lýsir þú þig samþykkan skilmálum okkar um persónuvernd og öryggi.
Hvað eru vafrakökur (e. Cookies)
Cookie er lítil textaskrá sem vefsvæðið getur sett inn á tölvuna þína eða önnur snjalltæki þegar vefsvæði Vest import ehf , www.vest.is er heimsótt í fyrsta sinn. Textaskráin er geymd á vefvafra notenda og vefur Vest þekkir skrána. Upplýsingarnar í textaskránni má nota til að fylgjast með vafri notenda á vefsvæðinu, bæta þjónustuna o.fl. Þetta gerir það mögulegt að Vest getur sent ákveðnar upplýsingar í vafra notenda og getur gert upplifun notanda ánægjulegri. Cookies geta innihaldið texta, númer eða upplýsingar eins og dagsetningar, en þar eru engar persónuupplýsingar um notendur geymdar.
Notkun VEST á vafrarakökum
Með því að samþykkja skilmála Vest Kt. 470120-0880 um notkun á cookies er fyrirtækinu m.a. veitt heimild til þess að:
- bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu við gestina til samræmis við auðkenninguna,
- að gera notendum auðveldara að vafra um vefsvæðið, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum,
- að þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn í notkun hennar,
- að birta notendum auglýsingar
- að safna og senda tilkynningar um fjölda notenda og umferð um svæðið,
Vest notar Google Analytics til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir og fleira. Engum frekari upplýsingum er safnað um hverja komu og ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.
Þjónusta Siteimprove er nýtt á vefnum með svipuðum hætti og Google Analytics, til dæmis til telja heimsóknir og til að finna brotna tengla sem notendur smella á sem og bæta upplifun notenda inn á vefnum.
Persónulegar upplýsingar sem við söfnum
Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem nafni, heimilisfangi, netfangi og símanúmeri í tengslum við afgreiðslu á pöntun frá þér eða vegna annarra samskipta við þig. Til dæmis skráum við þær persónugreinanlegu upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að koma til skila þeirri vöru sem þú kaupir. Einnig fjármálatengdar upplýsingar og heimilisfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisfang, símanúmer og viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem þú kaupir. Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við ákvæði laga nr. 77/2000 um persónuververnd og meðferð persónuupplýsinga.
Ef þú skráir þig á póstlista eða gefur upp netfangið þitt sendum við þér fréttabréf. Ef þú færð nú þegar tölvupósta frá fyrirtækinu en vilt hætta að fá þá er hægt að senda okkur póst á vest@vest.is
Neðst á öllum markpósti sem Vest sendir er einnig hnappur „afskrá af póstlista“ sem býður upp á að láta fjarlægja það netfang sem pósturinn var sendur á af póstlistanum.
Að versla á vefnum okkar
Við leggjum okkur fram um að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna, hvort sem þær upplýsingar eru fengnar og/eða geymdar fyrir milligöngu netsins eða ekki. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja öryggi upplýsinga þegar keyptar eru vörur í gegnum vefsíðuna. Vefurinn notast við SSL-skilríki sem þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag. Það gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.
SSL skilríki varna því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. lykilorð. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara dulkóðaðar og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað á öruggan máta.
Höfundaréttur og vörumerki
Texti, grafík, lógó, myndir og allt efni á www.vest.is eru eign Vest Import ehf.
Kt. 470120-0880 og er öll afritun og endurdreyfing bönnuð nema með skriflegu leyfi frá Vest Import ehf. VEST er skráð vörumerki í eigu Vest Import ehf. og ekki má nota það í tengslum við neina vöru eða þjónustu án skriflegs leyfis frá Vest Import ehf.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Varnarþing
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.