Stellar Works
Stellar Works er húsgagnamerki sem Japaninn Yuichiro Hori stofnaði í Sjanghæ árið 2012. Hugmyndin er að sameina austur og vestur, arfleifð og nútíma, handverk og iðnað, og merkið hefur unnið með hönnuðum á borð við Neri&Hu, Space Copenhagen og Nendo. Hjá VEST finnur þú borðstofustóla, borð, barstóla, bekki og sófa frá Stellar Works.
















