Arco er hollenskt fjölskyldufyrirtæki í Winterswijk sem rekur sögu sína aftur til ársins 1904, þegar Wouter van Ast opnaði þar verslun og síðar rammaverkstæði. Fyrirtækið er rekið af fjórðu kynslóð fjölskyldunnar og er einkum þekkt fyrir borð, sem eru framleidd í Winterswijk í samstarfi við samtímahönnuði. Hjá VEST finnur þú borðstofuborð, stóla, sófaborð og skenka frá Arco. Allar vörur frá Arco eru sérpantaðar.


























