Hönnun: Keiji Takeuchi – Origin Made
Hamarinn er eitt elsta verkfæri mannsins en er enn í dag afar gagnlegur á hverju heimili. Cast-hamarinn er í senn fallegur hlutur og nytjahlutur sem sinnir helstu viðhaldsþörfum heimilisins, eins og að negla nagla í vegg, eða daglegum notum í eldhúsinu. Það er líka ánægjulegt að sjá hamar sem getur staðið sjálfur. Cast-hamarinn er sandsteyptur úr hreinu messingi og fæst með satínáferð eða svertur.
Handgert af Paulo Martins og Alberto Cunha.
Efni
Messing
Upprunaland
Portúgal
Stærð
L791 x B21 x H175 mm
L = lengd, B = breidd, H = hæð