Coluna Vases

58.590 kr.

Aðeins 1 stk. eftir á lager

Fjöldi:

Hönnun: Hallgeir Homstvedt – Origin Made

Coluna-vasarnir eru handrenndir vasar þar sem strangt, rúmfræðilegt form ílátanna myndar andstæðu við áferð leirsins. Leirkerameistarinn João Lourenço handgerir vasana úr Pasta Grés Chamotada. Hann gerði tilraunir með að blanda saman ólíkum kornastærðum og skapaði grófan leir sem minnir á þjappaða jörð. Af ástríðu fyrir handverkinu hefur João í gegnum árin kannað ólíkar leirtegundir, brennsluhita og brennsluaðferðir og þannig skapað einstakt efni með ríkum jarðlitum og kornóttu yfirborði. Hallgeir Homstvedt nálgaðist hönnun Coluna-vasanna út frá notagildi og skapaði tvær ólíkar stærðir, fyrir meðalstóra blómvendi eða stærri skreytingar með styttri stilkum.

Handgert af João Lourenço.

Efni

Pasta Grés Chamotada

Upprunaland

Portúgal

Stærð

Hár - Ø205 x H275 mm

Lágur - Ø275 x H190 mm

Ø = þvermál, H = hæð

Skoðaðu líka

Nýlega skoðað