Hönnun: Verner Panton, 1963
Sýniseintak.
Easy Chair er einn sérstæðasti gripurinn í verkaskrá Verners Panton. Með mjúkum, ávölum formum, þriggja laga hönnun og þægilegri setu setur þessi tilkomumikli stóll sterkan svip á hvert rými, hvort sem er á heimili eða í atvinnuhúsnæði. Easy Chair er hægindastóll með rúmgóðri setu og stóru, U-laga baki sem umlykur þann sem situr og nýtist einnig sem armhvíla þegar skipt er um setstöðu.
Easy Chair er alfarið bólstraður og því er hægt að gera hönnunina ýmist áberandi eða hógværari eftir stíl og smekk, svo stóllinn fái þann karakter sem þú vilt, eða rýmið kallar á.
Stærð
Ø80 x H76 x SH44 cm
Ø = þvermál, H = hæð, SH = setuhæð