Monolith Plinth

148.614 kr.
Fjöldi:

Hönnun: Gabriel Tan – Origin Made

Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.

Monolith-stallurinn er heillandi húsgagnagerð, mitt á milli hlutar og húsgagns, skúlptúrs og stalls. Stallurinn dregur fram fegurð viðarins á glæsilegan hátt: hann er smíðaður án líms og haldið saman með földum tréplöggum og vafinni pappírssnúru í fræstri gróp. Útkoman er hreint, heilsteypt form með fallegri samsetningu tveggja áþreifanlegra efna. Monolith er fjölhæfur í notkun og nýtist sem hliðarborð, undir skrautmuni eða sem sjálfstæður skúlptúr.

Handgert af Maria Adelina og Carlos Barbosa.

Efni

Askur og pappírssnúra

Upprunaland

Portúgal

Stærð

L220 x B220 x H430 mm

L = lengd, B = breidd, H = hæð

Skoðaðu líka

Nýlega skoðað