Hönnun: Fritz Haller og Paul Schärer Jr., 1965
Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Grindin er úr krómhúðuðum málmrörum og á henni hvíla lakkaðar málmplötur. USM Haller 21 er með niðurfellanlegri hurð og opnu hólfi. Fæst í nokkrum litum.
USM Haller byggir á þremur grunneiningum: bolta, tengirörum og plötum. Hægt er að byggja kerfið í allar áttir, taka það í sundur og setja saman upp á nýtt eftir þörfum. Einingarnar má svo laga enn frekar að þínum þörfum með hurðum, skúffum og ýmsum fylgihlutum sem auðvelda skipulag.
Stærð
B50 x D35 x H56,5 cm
B = breidd, D = dýpt, H = hæð