The Muses

13.920 kr.

Aðeins 3 stk. eftir á lager

Fjöldi:

Hönnun: Renaat Ramon – Gardeco

The Muses eru glæsilegar keramíkstyttur eftir belgíska myndhöggvarann Renaat Ramon. Þær sýna persónur úr grískri goðafræði, dætur guðanna Seifs og Mnemosyne. Í fornum sögnum eru listagyðjurnar uppspretta innblásturs í bókmenntum, vísindum og listum. Fínleg kvenleg form og andstæður skarpra og mjúkra lína gera stytturnar heillandi og eftirtektarverðar.

Stytturnar eru handgerðar á brasilíska keramíkverkstæðinu Cores da Terra. Þær eru gegnlitaðar og fást í hvítu, okkurgulu og náttúrulegum leirlit og í þremur stærðum: Small, Plus og Large. Munur á lit og stærð er eðlilegur fylgifiskur handverksins.

Stærð

Small - H13,5 x D5 x B5 cm

Plus - H17 x D6,5 x B6,5 cm

B = breidd, D = dýpt, H = hæð

Skoðaðu líka

Nýlega skoðað