The Weaver's Bench L1200

262.074 kr.
Fjöldi:

Hönnun: Gabriel Tan – Origin Made

Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.

Línan varð til þegar Gabriel Tan kynntist Mariu Adelinu, vefara á sjötugsaldri og síðasta þekkta vefaranum í Paços Ferreira, húsgagnabæ í Portúgal. Orkan og ástríðan sem Dona Lina býr yfir gagnvart handverki sínu var honum mikill innblástur. Hún talaði um verk sín af miklum eldmóði og sýndi mikinn áhuga á að halda áfram að þróa færni sína með því að sækja námskeið hjá öðrum. Að lokum hannaði Gabriel Tan setulínu til að sýna handverk hennar: kolla og bekki með sterkum prófílum úr gegnheilum viði sem þola að ofið sé utan um þá og eru mjög stöðugir. Þar sem engar þverslár eru í smíðinni fær ofinn flöturinn úr pappírssnúru alla athyglina.

Handgert af Maria Adelina og Carlos Barbosa.

Efni

Askur, eik eða hnota og pappírssnúra

Upprunaland

Portúgal

Stærð

L1200 x B405 x H420 mm

L = lengd, B = breidd, H = hæð

Skoðaðu líka

Nýlega skoðað