Karfan þín er tóm
Sýningarsalur á Dalvegi 30, Kópavogi · Opið virka daga 11–17:30 og laugardaga 11–16
Karimoku
Tacchini
Anour
SKOÐA
Aðeins 1000 stk. eftir á lager
Framleitt eftir pöntun.Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Jima Highback er kærkomin viðbót við Jima-fjölskylduna sem kynnt var nýlega.
Jima Highback er stílhreinn og svipmikill stóll sem fellur áreynslulaust að ólíkum heimum, til dæmis skrifstofunni og ekki síður heimilinu. Sérstaklega eftirtektarverð er samfelld, mjúk línan sem liggur frá efri brún bólstraða baksins, um armana og niður að neðri brún setunnar. Þannig virðist setupúðinn umvafinn faðmlagi, auk þess sem hönnunin veitir hámarksþægindi.
Tignarlegt, hátt bakið og upphækkaðar armhvílurnar veita öxlum og baki notandans góðan stuðning og setan passar vel undir margar ólíkar gerðir borða. Jima Highback er því ómissandi við ráðstefnuborð, á vinnustöðum og í almennum fundarrýmum.
Með Jima Highback bætast fjórar nýjar útfærslur við Jima-fjölskylduna. Hönnunin fæst í miklu úrvali áklæða og lita, sem býður upp á að prófa sig áfram með hvaða innanhússstíl sem er.