Hönnun: Michael H. Nielsen, Danmörku
Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Luxe-línan er hönnuð af danska hönnuðinum Michael H. Nielsen og samanstendur af glæsilegum hirslum, sjónvarpshúsgögnum og barskápum. Öll húsgögnin í línunni eru með áberandi síldarbeinamynstri sem endurvarpar birtunni fallega og gæðir hönnunina lífi. Allar skúffueiningar eru með mjúklokun og minni einingarnar má festa á viðargrind eða hengja beint á vegg. Glæsileg hönnun þar sem notagildi og fagurfræði haldast í hendur.
Stærð
B40 x H30 x D40 cm
B = breidd, H = hæð, D = dýpt