Hönnun: Michael H. Nielsen, Danmörku
Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Soft Mood er ný útgáfa af New Mood borðstofuborðinu, með mýkri og nútímalegri línum. Föst, sveigð borðsvunta felur innbyggða stækkunarbraut sem rennur mjúklega á kúlulegum. Fínlegir fætur, ávalar brúnir og stílhrein hönnun gefa borðinu glæsileika, og það verður látlaus miðpunktur í hvaða borðstofu sem er.
Stærð
Soft Mood borð – Ø100 / Ø122 x H73 cm
Stækkunarplata, 1 stk. – B122 x L45 x H2 cm
Ø = þvermál, H = hæð, B = breidd, L = lengd