Hönnun: Kristina Dam
Framleitt eftir pöntun. Til sýnis á Dalvegi 30.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Borðstofuborð fyrir nútímaleg heimili. Hönnunin dregur fram fegurð og fjölhæfni náttúrulegra efna og styrkur og vönduð smíði sjást frá öllum hliðum. Þegar ekki er setið til borðs fær skúlptúrlegt og stílhreint form borðsins að njóta sín. Eikin er lökkuð með glæru lakki sem verndar viðinn og dregur fram eiginleika hans. Lakkið myndar harðan og endingargóðan flöt sem þolir rispur, ryk og óhreinindi. Collector-borðið kemur ósamsett í flötum umbúðum til að auðvelda flutning.
Efni
Lökkuð eik
Stærð
Ø120 x H74 cm
Ø = þvermál, H = hæð
