Hönnun: Piero Lissoni, 2019 – De Padova
Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Einfaldur og látlaus stíllinn fellur vel að öllu sem í kring er. Combi Open Unit eftir Piero Lissoni er hurðalaus skápur sem fæst í tveimur hæðum og með lýsingu að innan sem aukabúnaði, sem dregur fram muni og borðbúnað. Fjölbreytt úrval áferða í náttúrulegri, dökkri eða kolgrárri eik gefur mikla möguleika á að laga skápinn að eigin smekk.
Stærð

Efni
Skápur: plötur með gegnheilum viðarkjarna (blockboard), spónlagðar með náttúrulegri eik, dökkri eik eða anilínlitaðri eik í kolgráum lit, með glærri vatns- eða leysiefnabundinni lakkhúð.
Uppistöður og undirstöður: mattsvart, dufthúðað stál. Stillanlegir fætur úr pressuðum málmi.
Hillur: hert, sérlega tært gler.
Bakplata: vírgler eða bakmálað speglandi gler í kaffibrúnum lit.
Lýsing að innan (aukabúnaður): fjórir LED-kastarar. Gera þarf ráð fyrir fjarstýrðum rofa til að kveikja og slökkva.
Straumbreytir: innbyggður í undirstöðuna (24V útgangsspenna).
Ljósdeyfir: ekki innbyggður í ljósið.