Karfan þín er tóm
Sýningarsalur á Dalvegi 30, Kópavogi · Opið virka daga 11–17:30 og laugardaga 11–16
Karimoku
Tacchini
Anour
SKOÐA
Aðeins 5 stk. eftir á lager
Framleitt eftir pöntun.Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Honoré eftir Elisa Ossino er lína nútímalegra sófa ásamt lágum borðum með lífrænum formum sem endurspegla næmni hönnuðarins fyrir náttúrulegri og mínimalískri nálgun. Sófarnir hafa einstakan prófíl sem verður til úr sveigðum línum setu og baks, en bakið mótast af hringlaga rúllupúðanum sem fæst í tveimur stærðum. Renndir viðarfæturnir setja sérstakan svip á sófana og vísa til endurvakins handverks. Lágu borðin, sem njóta sín vel í nútímalegri stofu, eru hugsuð sem rúmmál og form sem gefa þeim skúlptúrlegt yfirbragð, og þau má para saman eftir stærð og áferð, svo sem marmara og lakki.