Hönnun: Vicky Courtens – Gardeco
Cadzand er listmunur úr keramík eftir belgíska listamanninn Vicky Courtens. Hann er innblásinn af brimvarnargörðunum í hollenska strandbænum Cadzand. Gripurinn geislar af tímaleysi og kemur á óvart með látlausri en eftirtektarverðri hönnun sem kallar á nánari skoðun.
Gripirnir eru handgerðir á keramíkverkstæðinu Arte Factory á vesturströnd Portúgals. Cadzand fæst í svörtu, málmlit og hvítu. Smávægilegur munur á lit og stærð er eðlilegur fylgifiskur handverksins.
Stærð
H20,5 x 30,5 cm
H = hæð