Karfan þín er tóm
Sýningarsalur á Dalvegi 30, Kópavogi · Opið virka daga 11–17:30 og laugardaga 11–16
Sérpöntun
Varan er framleidd eftir pöntun. Afhendingartími verður staðfestur um leið og við leggjum inn pöntun hjá framleiðanda.
Karimoku
Tacchini
Anour
SKOÐA
Aðeins 0 stk. eftir á lager
Framleitt eftir pöntun.Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Beso Alto er nýjasta viðbótin við Beso-línuna eftir hönnuðinn Khodi Feiz. Stóllinn heldur hreinum línum og léttu, hlýlegu yfirbragði Beso-stólsins, en bakið er örlítið hærra og innbyggðar armhvílur veita aukinn stuðning og þægindi.
Beso Alto hentar jafnt við borðstofuborðið heima og við fundarborð, á vinnusvæðum og í hótel- og veitingarýmum. Hægt er að velja um sex gerðir undirstaðna: fjórfætta stálundirstöðu, fjórfætta viðarundirstöðu úr olíubornum aski, sleðagrind, snúanlegan stjörnufót, stjörnufót á hjólum eða hæðarstillanlegan fimm arma snúningsfót á hjólum. Stóllinn fæst í miklu úrvali vandaðra áklæða og leðurs.