Big Mushroom

586.080 kr.
Fjöldi:

Hönnun: Pierre Paulin – Artifort

Hægindastóll fyrir alla tíma. Næmur en sterkur. List sem er alltaf þægileg. Big Mushroom eftir Pierre Paulin er hluti af fastasafni Museum of Modern Art í New York. Hann kom fyrst á markað sem F562 og hefur nú verið endurútgefinn undir nafninu Big Mushroom.

Með þessum stól skar hönnuðurinn Pierre Paulin sig úr með frumlegu formi og framleiðsluaðferð sem var byltingarkennd á sínum tíma. Hugmyndin að Mushroom kviknaði þegar Pierre Paulin virti fyrir sér konur í sundfötum sem mótuðu og hjúpuðu líkamann. Hann vildi ná sömu áhrifum í sæti. Innblásturinn sést í fallegum sveigjunum og í saumlausri, teygjanlegri bólstruninni sem er úr einu stykki.

Mushroom var fyrsta húsgagnið sem framleitt var með saumlausu, teygjanlegu áklæði úr einu stykki. Frumlegt formið átti eftir að setja svip sinn á húsgögn sjöunda áratugarins og veita fjölda annarra skúlptúrlegra verka innblástur. Ávöl formin og þægileg bólstrunin fara einstaklega vel með skærum litum og skapa frumlegt og nútímalegt yfirbragð.

Stærð

Skoðaðu líka

Nýlega skoðað