Eddy

324.000 kr.
Fjöldi:

Hönnun: PearsonLloyd – Tacchini

Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.

Eddy kemur frá bresku hönnunarstofunni PearsonLloyd og er stóll með djarfan sjarma. Þessi stílhreini og netti hægindastóll hefur sérstakar línur og býður upp á mikla möguleika í vali á áklæði. Fagurfræðilegur miðpunktur myndast þar sem ávalt bakið og opið milli baks og setu mætast. Um leið nýtist opið sem handfang til að færa stólinn auðveldlega. Brydding í andstæðum lit gefur stólnum einstakt og litríkt yfirbragð. Eddy fæst í tveimur útgáfum, með fótum eða kringlóttum snúningsfæti, og er einstaklega fjölhæfur, hvort sem er á heimilinu eða í atvinnurýmum á borð við skrifstofur og hótel.

Stærð

Vörunúmer OEDP61/OEDB61

B61 x D62 x H78 x SH45 cm

B = breidd, D = dýpt, H = hæð, SH = setuhæð

Skoðaðu líka

Nýlega skoðað