Giulia

717.120 kr. 1.195.200 kr.
Fjöldi:

Hönnun: Gianfranco Frattini, 1957

Sýniseintak. Selt saman.

Endurútgáfa hins þekkta Model 877 eftir Gianfranco Frattini frá árinu 1957, nefnd eftir eiginkonu Gio Ponti, sem var mikill lærifaðir og leiðbeinandi hönnuðarins. Giulia er nútímaleg túlkun Frattinis á klassíska eyrnastólnum og eitt af sögulegum dæmum um ítalska hönnun. Hönnuðurinn notar skýrar og afgerandi rúmfræðilegar línur til að túlka þá rúmgóðu og djúpu mýkt sem einkennir stóla af þessu tagi, með háu baki og höfuðstoðum á hliðunum. Skelin er í einu lagi með vænglaga örmunum og hvílir á fínlegri viðargrind. Burðarhlutarnir eru órjúfanlegur hluti af glæsilegu yfirbragði stólsins, rétt eins og viðarskrúfurnar sem fá að sjást og gleðja athugult auga. Stóllinn var áberandi í mörgum af helstu innanhússverkefnum Frattinis á sjöunda áratugnum. Giulia fæst klædd leðri, gervileðri eða áklæði og í fjölbreyttu úrvali áferða og lita sem hæfa fáguðu nútímaumhverfi.

Stærð

Skoðaðu líka

Nýlega skoðað