Glider

438.240 kr.
Fjöldi:

Hönnun: Luca Nichetto – Artifort

Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.

Með lífrænu formi sínu býður Glider upp á aðlaðandi og afslappaða setu í anddyrum og setustofum. Mjúk sveigja bólstrunarinnar og fjöldi fágaðra smáatriða gera þessa svipmiklu hönnun Luca Nichetto eftirtektarverða. Nákvæm bólstrunartækni er nýtt til að veita óviðjafnanleg þægindi.

Rúmgóð setan með formfögrum armvængjum, falin samskeytin sem tengja grindina við setuskeljarnar, fágaðir saumarnir og fjölbreytt úrval áklæða og leðurs ljá hönnuninni aðdráttarafl og ósvikinn karakter. Fáguð smáatriði Glider njóta sín frá öllum hliðum, líka að aftan, og því hentar stóllinn einstaklega vel í opin rými.

Glider er þægileg hönnun sem umlykur og faðmar en er um leið opin og aðlaðandi. Hlutföllin eru fullkomin og stóllinn sómir sér vel í hvaða almenningsrými sem er og á hvaða heimili sem er.

Stærð

Skoðaðu líka

Nýlega skoðað