Hönnun: Roberto Sironi – Tacchini
Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Colonna eru tvö skúlptúrísk en hagnýt borð, hliðarborð og sófaborð, hugsuð sem samspil hönnunar, efnis og hversdagslegra athafna.
Colonna endurtúlkar byggingarlistarlegu frummyndina sem borðin draga nafn sitt af og sýnir vel hvernig Roberto Sironi sameinar notagildi, frásögn og skúlptúr. Strendingslaga grindin er klædd mótuðu speglagleri sem endurkastar umhverfinu og brýtur upp mynd þess, en marmaraplatan skapar fínlegt jafnvægi milli mikilfengleika, léttleika og abstrakt forms. Borðin fást í tveimur stærðum og með ólíkum marmara.
Efni
Grind klædd mótuðu speglagleri, marmaraplata.
Stærð
Hátt: B42 x H48 cm
Lágt: B70 x H26 cm
B = breidd, H = hæð