Palais Coffee & Side Tables

470.400 kr.
Fjöldi:

Hönnun: Anya Sebton og Eva Lilja Löwenhielm – Asplund

Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.

Undirstaða úr gegnheilum eikarplötum og borðplata úr handskornum eikarspóni. Fæst bæsað í fjórum ólíkum litum eða í náttúrulegri eik. Húðað með glæru, möttu pólýúretanlakki.

Í Palais-línunni eru borðstofuborðið Palais Royal og sófaborðin Petit Palais, Grand Palais og Palais Ovale. Þegar Anya Sebton og Eva Lilja Löwenhielm hönnuðu Palais-línuna heillaði þær hugmyndin um að skapa húsgögn innblásin af sögulegu umhverfi og fornum höllum með súlum sínum, stöplum og þiljuðum veggjum. Allt er þetta unnið af fínleika og traustu handverki. Innsetningin Colonnes de Buren/deux plateaux eftir Daniel Buren í hallargarði Palais Royal veitti hönnuðunum ekki aðeins innblástur að forminu heldur líka að nafninu.

Litaval

Natural Oak (PU1), White Stained Oak (PU2), White Stained Ash (APU2), Teak Stained (APU7), Dark Grey (APU8), Dusty Pink (APU9), Chestnut Stained (APU10) eða Charcoal Stained (APU11).

Efni

Borðplata: spónn eða Carrara-marmari.

Undirstaða: gegnheill viður.

Stærð

Petit Palais - Ø42 x H42 cm

Petit Palais - Ø42 x H55 cm

Palais Bourbon - Ø65 x H42 cm

Grand Palais - Ø92 x H37 cm

H = hæð, Ø = þvermál

Skoðaðu líka

Nýlega skoðað