Hönnun: Steffensen & Würtz, Danmörku
Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Haven er lína af rúmgrindum, rúmgöflum og speglum. Mínímalísk rúmgrindin er úr gegnheilli eik og við hana passar mjúkur og notalegur rúmgafl. Rúmgrindin er smíðuð úr viði með breiðum ramma allan hringinn, sem gefur bæði stílhreint útlit og aukið notagildi – flöturinn er tilvalinn undir morgunkaffið eða bókina. Hönnuðirnir, Steffensen & Würtz, hönnuðu Haven rúmgrindur og rúmgafla út frá mínímalískri nálgun, með handunnum smáatriðum og ást og virðingu fyrir náttúrulegum, gegnheilum og endingargóðum efnum. Saman gera þessir þættir Haven að kyrrlátu athvarfi.
Stærð
B166 x D230 x H23 cm
B186 x D230 x H23 cm
B206 x D230 x H23 cm
B = breidd, D = dýpt, H = hæð