Hönnun: Steffensen & Würtz, Danmörku
Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Haven er lína af rúmgrindum, rúmgöflum og speglum. Rúmgrindin er í anda naumhyggju og úr gegnheilli eik, og við hana passar mjúkur og aðlaðandi rúmgafl. Rúmgrindin er úr viði með breiðum ramma allan hringinn, sem gefur henni stílhreint yfirbragð og aukið notagildi, því á rammanum er tilvalið að leggja frá sér morgunkaffið eða bókina. Hönnuðirnir hjá Steffensen & Würtz nálguðust Haven-rúmgrindurnar og -rúmgaflana út frá naumhyggju, í bland við handunnin smáatriði og ást og virðingu fyrir náttúrulegum, gegnheilum og endingargóðum efnum. Allt þetta gerir Haven að kyrrlátum griðastað, jafnt hversdags sem um helgar.
Stærð
B166 x H66 x D7 cm
B186 x H66 x D7 cm
B206 x H66 x D7 cm
B = breidd, H = hæð, D = dýpt