Yacht Dining Table

522.631 kr. 653.288 kr.
Stærð: 210 x 100 cm
Borðplata: Grey Brown Fenix laminate
Fætur: Oiled oak – Conical
Fjöldi:

Hönnun: Glismand & Rüdiger - Bolia

Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.

Þegar einstök alúð er lögð í viðarsmíði og hún sameinuð skandinavísku næmi verður útkoman einstök. Þannig hannaði danska tvíeykið Glismand & Rüdiger Yacht línuna, sem hófst með einstaklega einföldu og látlausu borðstofuborði. Vandaðar samsetningar og falleg smíði einkenna borðið, sem fæst bæði ílangt og hringlaga og með keilulaga eða sívölum fótum.

Borðplata og fætur

Harðplast (Grey Brown Fenix, Light Grey Fenix eða White) með fótum úr olíuborinni eik eða hvítlitaðri olíuborinni eik. Eikarspónn (Oiled oak eða White pigmented oiled oak) með fótum í sömu áferð. Fætur fást keilulaga (Conical) eða sívalir (Round).

Stækkun

Hægt er að lengja borðin með stækkunarplötum sem seldar eru sér: 210 cm borðið í allt að 310 cm og Ø122 cm borðið í allt að 222 cm.

Upprunaland

Pólland

Stærð

210 x 100 cm: L210 x B100 x H73,5 cm

Ø122 cm: Ø122 x H73,5 cm

L = lengd, B = breidd, D = dýpt, H = hæð, Ø = þvermál

Skoðaðu líka

Nýlega skoðað