Hönnun: Asger Risborg Jakobsen
Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Líkt og árstíðirnar, sem breytast í sífellu, er Tajo ljósalínan sjónrænt á stöðugri hreyfingu. Tajo ljósin eru hönnuð af Asger Risborg Jakobsen og fást í mismunandi stærðum, áferðum og útfærslum, öll klædd bómull. Þetta fallega loftljós nýtist einnig sem tímalaus vegglampi og býður því upp á fjölbreytta lýsingu í hvaða rými sem er. Lokaður toppur skermsins endurkastar ljósinu og mýkir það.
Tajo línan fæst einnig sem hengiljós, loftljós, gólflampi og borðlampi með fæti úr travertíni.
Stærð
Ø40 x H17,5 cm
Ø51 x H18,7 cm
Ø = þvermál, H = hæð