Helium Floor lamp

789.120 kr.
Fjöldi:

Hönnun: Elisa Ossino, 2024 – De Padova

Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.

Efni í þjónustu ljóssins. Helium er einingaskiptur lampi sem Elisa Ossino hannaði fyrir De Padova. Hann er eins og ljósskúlptúr, röð geómetrískra forma með flæðandi takti sem gefur til kynna möguleikann á endalausri útvíkkun.

Lampinn fæst með einni, tveimur eða þremur einingum og nýtur sín í hlýjum endurspeglunum glersins. Hann opnar fyrir óvæntar samsetningar og setur sterkan svip á rýmið, líka þar sem lofthæð er mikil. Helium fæst í tveimur ólíkum áferðum: annars vegar í sérunnu gleri, sem er unnið meðan það er enn heitt með örfínum sandkornum til að ná fram einstakri, mjúkri skuggaáferð; hins vegar í munnblásnu, þrílaga ópalgleri og sýruættu gleri sem mýkir gegnsæið og gefur yfirborðinu flauelsmjúkt yfirbragð.

Glerplöturnar eru tengdar saman með innra álkerfi sem ber grindina uppi án annarra sýnilegra festinga. Fínleg form í svartri, mjúkri áferð (soft-touch) draga fram samskeytin. Lampinn fæst sem borðlampi, loftljós og gólflampi, en í gólflampanum er glerfóturinn mildilega upplýstur, rétt eins og einingarnar. Hlýja og dreifða birtuna má stilla með ljósdeyfi á snúrunni eða í loftfestingunni.

Stærð

Skoðaðu líka

Nýlega skoðað