Hönnun: Skrivo, Ítalíu
Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Bowie línan er hönnuð af ítölsku hönnunarstofunni Skrivo og í henni eru sófi, hægindastóll og skemill undir áhrifum frá skandinavískri hönnun frá miðri 20. öld. Þar mætast nútímalegar og hefðbundnar trésmíðaaðferðir í hreinu og áreynslulausu skandinavísku útliti. Hönnunin er FSC™-vottuð, með mjúklega sveigðri grind, og fætur og armur úr endingargóðri, gegnheilli eik liggja utan um bakið og gera setuna nánast þyngdarlausa ásýndar. Hægt er að sérsníða húsgögnin með áklæði eða rekjanlegu leðri að eigin vali og þau henta vel fyrir stutta hvíld á skrifstofunni, í forstofunni eða sólstofunni. Samsvarandi skemillinn eykur þægindin og notagildið og fullkomnar stílhreina hönnun sófans og hægindastólsins.
Stærð
B58 x D48 x H42 cm
B = breidd, D = dýpt, H = hæð