Hönnun: Studio Nooi
Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Calma hægindastóllinn býður þér að hægja á og láta fara vel um þig. Hönnunin er FSC™-vottuð og smíðuð úr gegnheilum viði með fáguðum samsetningum. Útlínurnar eru léttar og þokkafullar en grindin heldur fullum styrk og stöðugleika. Bólstruð setan gefur stílhreinni viðargrindinni hlýju og þægindi.
Calma hægindastóllinn er í senn tímalaus og nútímalegur og er ekki aðeins hannaður til að horfa á, heldur til að lifa með – hljóðlát nærvera sem færir hvaða rými sem er jafnvægi, þægindi og látlausan persónuleika. Í lestrarhorninu verður hann eðlilegur og notalegur staður til að staldra við.
Stærð
B64 x H69,5 x D63 x SH41 x SD63 cm
B = breidd, H = hæð, D = dýpt, SH = setuhæð, SD = setudýpt