Dew Dining Table

1.232.400 kr.
Fjöldi:

Hönnun: Sabine Marcelis, 2022 – Arco

Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.

Hinn virti hönnuður Sabine Marcelis kynnir nýja vöru: Dew-borðstofuborðið. Dew markar nýja stefnu hjá Sabine. Hún hefur fært einstakt formmál sitt yfir í viðarhlut og úr verður skúlptúrlegur gripur sem samanstendur af einföldum, lífrænum formum. Sabine tók þessum nýja efnivið opnum örmum og vann með æðum viðarins til að skapa upplifun sem er bæði sjónræn og áþreifanleg.

Vegna sláandi forms fer borðið hvergi illa. Hvert sem umhverfið er dregur Dew að sér augað. Borðstofuborðið er jafn hagnýtt og það er fagurt, smíðað með handverksaðferðum Arco.

Það fæst í nokkrum stærðum, fyrir sex, átta eða tíu manns, og því nýtist Dew sem borðstofuborð en á ekki síður heima á vinnustaðnum.

Stærð

Skoðaðu líka

Nýlega skoðað