Hönnun: Fritz Haller og Paul Schärer Jr., 1965
Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
USM Haller 23 er skenkur hannaður af Fritz Haller og Paul Schärer fyrir USM. Grindin er úr krómhúðuðum málmrörum og á henni hvíla lakkaðar málmplötur. USM Haller 23 er með hillu og skáp með niðurfellanlegri hurð. Fæst í nokkrum litum.
USM Haller byggir á þremur grunneiningum: bolta, tengirörum og málmplötum. Hægt er að byggja kerfið í allar áttir, taka það í sundur og setja saman upp á nýtt eftir þörfum. Einingarnar má svo laga enn frekar að þínum þörfum með hurðum, skúffum og ýmsum fylgihlutum sem auðvelda skipulag.
Stærð
B77,3 x D37,3 x H56,5 cm
B = breidd, D = dýpt, H = hæð