Hönnun: Jasper Morrison – Artifort
Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Jasper Morrison hannaði þssa fáguðu og vel ígrunduðu stólalínu, sem sameinar á áreynslulausan hátt meginreglur hringrásarhönnunar, notagildi og nútímalega fagurfræði.
Vega einkennist af tveimur ávölum púðum, öðrum fyrir bakið og hinum fyrir setuna, sem tengjast á glæsilegan hátt með málmbandi og grind úr málmrörum. Eins og sönnum Artifort-stól sæmir má hafa púðana á setu og baki í ólíkum áklæðum, sem býður upp á endalausa möguleika. Vega er hannaður fyrir margs konar rými og fellur áreynslulaust að biðstofum, söfnum, borðstofum, skapandi vinnurýmum, fundarherbergjum og heimilum. Einföld hönnun sem nýtist víða.
Vega-línan býður upp á fjölbreytt úrval stóla sem laga sig að ólíku umhverfi. Hægt er að velja stílhreinar armhvílur úr málmröri sem ramma setuna fallega inn eða hreint form án arma. Þrár gerðir fóta eru í boði: fjórir fætur úr stálröri, snúanlegur stjörnufótur eða stjörnufótur á hjólum á stólaútgáfunni, hver um sig sniðin að ólíkum þörfum og útliti.
Undir látlausum glæsileikanum býr vandlega útfærð hönnun. Vinnuvistfræðin er fínstillt fyrir einstök þægindi og einingauppbyggingin fækkar íhlutum, sem dregur úr efnisnotkun án þess að slegið sé af gæðum eða útliti. Öll efni má aðskilja og endurnýta að fullu, sem endurspeglar meðvitaða nálgun á sjálfbærni. Hægt er að taka áklæðið af í heild til hreinsunar og skipta um það þegar úrf. Mikilvægast er þó að auðvelt er að taka Vega í sundur, sem einfaldar viðgerðir og endurnýjun hluta, lengir líftímann og auðveldar viðhald.
Stærð
