Sápan er gerð til heiðurs kvenkyns sjamönum Kóreu, svonefndum mudang, græðurum sem brúa bilið milli heims manna og anda. Hún inniheldur ilmkjarnaolíur úr sandelviði (alheimstrénu í kóreskri þjóðtrú, kjarnanum í sköpunarsögu Kóreu) og furu ásamt virkum kolum, efnum sem notuð eru í hefðbundnum hreinsunarathöfnum.
Sápunni er pakkað í hvítan pappír sem vísar til baekji, hvíts helgipappírs sem notaður er í sjamanískum athöfnum sem helgigripur, fórnargjöf eða þegar helgir textar eru brenndir. Að brenna pappír má líta á sem hreinsun hins óhreina með eldi en einnig sem bæn til guðanna, og þá er hvíti pappírinn milliliður manna og guða.