VEST COLLECTION III
Keramik frá VEST – Handverk fyrir hversdagslífið
Í kjarna hverrar vöru frá VEST liggur ástríða fyrir gæðum, handverki og hönnun sem vekur gleði í hversdagslegri notkun. Með einfaldri, stílhreinni fegurð og náttúrulegri litapalletu eru diskarnir, skálarnar, kaffibollarnir og vörur okkar hannaðar til þess að standast tímans tönn – bæði í notkun og stíl.
Hver leirvara er rennd með mikilli nákvæmni og metnaði, svo mikilli nákvæmni að það virðist nánast ótrúverðugt að keramikið sé í raun og veru handgert.
Hjón í norðurhluta Tyrklands framleiða alla vörulínuna fyrir okkur í fallegu heimastúdíói, en einmitt þar fæddist vörulínan undir handleiðslu VEST sumarið 2023.
Sérhvert smáatriði er úthugsað: Slétt yfirborð, fínstilltir kantar og fullkominn þyngdarpunktur gera hverja einustu vöruna unaðslega í notkun.
Hönnunin er bæði praktísk, falleg og tímalaus – hver vara er einstök og litirnir í vörulínunni lifandi, engin vara er alveg eins.
Veldu VEST keramik – þar sem handverk, gæði og stíll sameinast í fullkominni heild.
Veldu VEST keramik – þar sem handverk, gæði og stíll sameinast í fullkominni heild.