Hönnun: Jorre van Ast – Arco
Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Nafnið segir allt sem segja þarf: grunnhúsgagn. Sterkbyggt og látlaust borð úr gegnheilum viði og steypu – endingargóðum efnum sem þola hnjask. Borð sem þú veist að næsta kynslóð mun líka sitja við og njóta. Base er fyrsta varan í Local Wood-línu Arco: húsgögn úr viði sem vex í nágrenni verkstæðisins. Því ekki þarf allt fallegt að koma langt að.
Efni
Borðplata og fætur: gegnheil eik (staðbundinn viður), reykt eik eða hnota. Fótstykki: steypa, náttúruleg eða lökkuð í lit. Allir litir og áferðir Arco eru í boði fyrir þessi efni.
Athugið
Fæturna má festa 22, 32, 42 eða 52 cm frá skammhlið borðsins (á 360 cm borði aðeins 52 cm). Sérmál eru möguleg innan marka framleiðanda – hafðu samband við VEST.
Stærð
Rectangular 2: 240x100, 240x128, 240x140, 280x100, 280x120, 280x140, 320x105, 320x120, 320x140, 360x105, 360x120, 360x140 cm, H75 cm
Rectangular 2 Connected: 480x100, 480x140, 560x100, 560x120, 560x140 cm, H75 cm
Mál eru gefin upp sem lengd x breidd (Ø = þvermál) og hæð (H).

