Beso Circulo

56.400 kr.
Fjöldi:

Hönnun: Khodi Feiz – Artifort

Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.

Beso Circulo er ný lína stóla með mótaðri skel eftir Khodi Feiz og byggir á einkennandi línum og þægindum Beso-línunnar. Skelin er úr 100% endurunnu pólýprópýleni, styrktu með glertrefjum. Stóllinn er nettur, léttur og einfaldur í formi og fínleg úrtaka í skelinni gefur honum fágaðan svip.

Auðvelt er að taka Beso Circulo í sundur, sem einfaldar viðhald og viðgerðir og gerir kleift að skipta út einstökum hlutum. Skelin fæst í átta litum: svörtu, hvítu, beige, ljósgráu, dökkgrænu (Evergreen), vínrauðu (Burgundy), appelsínugulu (Burned Orange) og ljósbláu (Light Blue). Sumar útfærslur fást í færri litum. Stóllinn fæst án áklæðis eða með innbyggðri setusessu í miklu úrvali áklæða.

Hægt er að velja um fjórfætta stálundirstöðu, sveigða fjórfætta stálundirstöðu (einnig í staflanlegri útgáfu án sessu), fjórfætta viðarundirstöðu úr olíubornum aski, sleðagrind, snúanlegan stjörnufót, stjörnufót á hjólum eða hæðarstillanlegan fimm arma snúningsfót á hjólum, með eða án arma. Beso Circulo hentar vel í mötuneyti, skóla, skrifstofur og önnur opin rými, jafnt sem heima.

Stærð

Skoðaðu líka

Nýlega skoðað