Beso Circulo bar stool

185.520 kr.
Fjöldi:

Hönnun: Khodi Feiz – Artifort

Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.

Beso Circulo-barstóllinn tilheyrir Beso Circulo-línunni eftir Khodi Feiz. Skelin er úr 100% endurunnu pólýprópýleni, styrktu með glertrefjum, og stóllinn er nettur, léttur og einfaldur í formi, með fínlegri úrtöku sem gefur honum fágaðan svip.

Barstóllinn fæst í þremur setuhæðum, 60, 70 og 80 cm, með fjórfættri stálundirstöðu, fjórfættri viðarundirstöðu úr olíubornum aski, sleðagrind eða snúanlegum diskfæti, og einnig með hæðarstillanlegum diskfæti (61–81 cm). Skelin fæst í sex litum: svörtu, hvítu, beige, ljósgráu, dökkgrænu (Evergreen) og vínrauðu (Burgundy). Stóllinn fæst án áklæðis eða með innbyggðri setusessu í miklu úrvali áklæða, og auðvelt er að taka hann í sundur, sem einfaldar viðhald og viðgerðir.

Skoðaðu líka

Nýlega skoðað