F666 Armchair

348.000 kr.
Fjöldi:

Hönnun: Kho Liang Ie – Artifort

Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.

Hægindastólarnir F656 og F666 komu fyrst frá Artifort árið 1971 og bera skýr merki um hönnunarnálgun Kho Liang Ie, þar sem skýr uppbygging mætir aðlaðandi þægindum. Haustið 2026 snúa þessir þekktu stólar aftur og halda upprunalegum karakter sínum: grafískri grind úr málmvír og ríkulegri bólstrun, sem saman skapa jafnvægi á milli léttleika í útliti og efnismikillar nærveru.

Hvor stóll túlkar þtta jafnvægi á sinn hátt. F656 er með djúpri, hnepptri bólstrun sem gefur setunni ríkulega fyllingu og dýpt, en F666 einkennist af láréttum, bólstruðum rásum sem skapa línulegri hrynjandi. Saman endurspegla þeir tímalausa hönnunarsýn Kho Liang Ie, þar sem nákvæmni, opið yfirbragð og þægindi mætast í látlausum glæsileika.

Stærð

Skoðaðu líka

Nýlega skoðað