Hönnun: Kristina Dam
Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Foldable Console-borðið tilheyrir Foldable-línunni þar sem mínímalismi og notagildi eru í fyrirrúmi. Hreinar og stílhreinar línur og hagnýtar hillur bera vott um nútímalega hönnunarhugsun. Borðið er úr burstuðu ryðfríu stáli og er bæði sterkt og fallegt, og sýnilegar samsetningar og vandaðir boltar gefa því fágað, iðnaðarlegt yfirbragð. Þetta er borð sem vekur athygli og gefur hverju rými aukinn glæsibrag. Það kemur ósamsett í flötum umbúðum til að auðvelda flutning.
Stærð
