Gaia

1.085.280 kr.
Fjöldi:

Hönnun: Andreas Engesvik – Hjelle

Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.

Gaia er sófi með rólegt og skúlptúrískt yfirbragð. Hann er hannaður til að standa frjáls í rýminu og nýtur sín frá öllum hliðum. Þægindin eru mjúk og umvefjandi, eins og uppáhaldspeysan, og á Gaia má sitja á marga vegu, líka á örmunum og bakinu.

Gaia er handgerður í Noregi með sjálfbærni að leiðarljósi. Áklæðið er laust, öllum hlutum má skipta út og létt bygging gerir sófann auðveldan í flutningi, viðhaldi og endurnýjun. Engir hlutar eru límdir, heftaðir eða steyptir saman, og pokagormar í sætinu draga úr notkun svamps. Efnisnotkun er haldið í lágmarki og allir hlutar eru hannaðir þannig að hægt sé að gera við þá og endurvinna.

Áklæði

Gaia fæst í eftirfarandi áklæðum: Cosmo (Pr.g. 1), Bardal, Hallingdal og Mai (Pr.g. 2), Amdal, Herringdal og Mainline (Pr.g. 3), Arkiv 4 og Barnum (Pr.g. 4), Redal og Vidar (Pr.g. 5), Moss og Sirdal (Pr.g. 7). Við pantanir á fleiri en þremur sófum koma önnur áklæði til greina. Gaia fæst ekki í leðri.

Efni

Fætur úr gljáandi stáli, 18 cm.

Stærð

B238 x D96 x H67 x SH38 cm

B = breidd, D = dýpt, H = hæð, SH = setuhæð

Skoðaðu líka

Nýlega skoðað