Handklæðasett frá VEST: tvö handklæði (50 x 90 cm) og tvö stór baðhandklæði (90 x 150 cm) í sama lit.
Bómullarhandklæðin frá VEST eru unaðslega mjúk, draga í sig vökva hratt og baðhandklæðin eru extra stór. Handklæðin eru framleidd í Tyrklandi úr svokölluðu „MicroCotton“ sem er frábrugðið öðrum bómullartegundum að því leyti að það er framleitt úr lengri bómullartrefjum. Þetta gefur þéttari uppbyggingu og meiri mýkt.
Best er að þvo handklæðin við 40 °C svo þau endist vel og haldi mýktinni.