Hunter

1.412.160 kr.
Viður: Oak - Soap
Áklæðaflokkur: Saddle Leather
Saddle

Anilín söðulleður frá Tärnsjö

Fjöldi:

Hönnun: Torbjørn Afdal, 1960 – Eikund

Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.

Söðulleðrið er strengt utan um viðargrindina með stillanlegum ólum og gerir það stólinn að fullkomnu dæmi um svokallaða veiðistóla. Slíkir hægindastólar nutu gríðarlegra vinsælda á sjötta og sjöunda áratugnum og teljast nú til sígildrar hönnunar. Afdal útskrifaðist frá norska Listiðnaðarskólanum (National Academy of Craft and Art Industry) árið 1946 og starfaði allan sinn feril hjá hinni goðsagnakenndu teiknistofu Tegnekontoret Bruksbo. Hann hannaði grindina í mínimalískum anda með áherslu á flæðandi og lífrænt form, ólíkt öðrum veiðistólum. „Simplexity“, flókinn einfaldleiki, lýsir Hunter vel. Það sést í tvöföldu leðrinu með samlitum kantsaumi og í sylgjunum úr gegnheilu, steyptu messingi. Hunter er hægindastóll þar sem hugað er að hverju smáatriði og handverkið endist kynslóðum saman.

Stærð

Skoðaðu líka

Nýlega skoðað