Karfan þín er tóm
Sýningarsalur á Dalvegi 30, Kópavogi · Opið virka daga 11–17:30 og laugardaga 11–16
Karimoku
Tacchini
Anour
SKOÐA
Sýningareintak
Aðeins 1 stk. eftir á lager
Sýniseintak.
Hnakkleðrið er strekkt utan um viðargrindina með stillanlegum ólum og það gerir stólinn að fullkomnu dæmi um svokallaða „veiðistóla“. Þessir hægindastólar nutu gríðarlegra vinsælda á sjötta og sjöunda áratugnum og hafa nú skipað sér sess sem nútímaklassík. Afdal útskrifaðist úr Listiðnaðarakademíu ríkisins í Noregi árið 1946 og starfaði allan sinn feril hjá hinni goðsagnakenndu teiknistofu Tegnekontoret Bruksbo. Afdal hannaði grindina með mínímalíska fagurfræði að leiðarljósi og lagði áherslu á flæðandi og lífrænt form, ólíkt öðrum veiðistólum. „Simplexity“ lýsir Hunter vel. Það sést á tvöföldu leðrinu með samlitum kantsaumi og sylgjunum úr gegnheilu, steyptu messingi. Hunter-hægindastóllinn er afar vandaður gripur, smíðaður til að endast kynslóðum saman.