Karfan þín er tóm
Sýningarsalur á Dalvegi 30, Kópavogi · Opið virka daga 11–17:30 og laugardaga 11–16
Karimoku
Tacchini
Anour
SKOÐA
Aðeins 10 stk. eftir á lager
Framleitt eftir pöntun.Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Hinn sögufrægi safarístóll er nánast barnslega einföld, traust og geómetrísk smíð þar sem harðir og mjúkir hlutar skapa mýkt og sveigjanleika. Journey-stóllinn er nútímatúlkun Space Copenhagen á þessu formmáli, þar sem þægindi og nútímalegur lífsstíll eru í forgrunni. Markmiðið var að stóllinn yrði fjölhæfur, bæði í notkun og útliti, og að í hönnuninni mættust hið grófa og sveitalega og fágaðri, nútímalegri nálgun. Mjúkur boginn undir setupúðanum mildar sterkar og karlmannlegar útlínur stólsins og gefur honum léttara og fágaðra yfirbragð. Þykkur setupúði og mjúkt bak tryggja góð þægindi.
Sýnileg smáatriði úr dökku messingi draga fram og upphefja einfalda samsetningu stólsins.
Journey-stóllinn hentar vel við hvers kyns borðhald en einnig sem skrifborðsstóll á heimilinu og á fundum og ráðstefnum.